Leikur: Álftanes - KFS 2-3

15. ágúst 2009

Álftanes - KFS [2-3]

Álftanesvöllur

KFS vann loksins sigur á sterku liði Álftanes í dag, báðar fyrri viðureignum liðana enduðu með 1-1 jafntefli og KFS staðráðnir að sigra Álftanesinga einu sinni í sumar. KFS byrjaði betur og var komið yfir eftir 8 mín leik og staðan í hálfleik 1-0 þrátt fyrir að bæði lið hefðu geta skorað mörk. Álftanes jafnaði leikinn en KFS skoraði 2 mörk með stuttu millibilli og gerði næstum út um leikinn. Andstæðingarnir voru hinsvegar ekki sammála og skoruðu eitt mark og settu pressu undir lokinn en KFS hélt út og tryggði sér sigur.

 
Sjá KSÍ skýrslu af leiknum, smella hérna.
 
Mörk KFS:
8. mín. 0:1 Sæþór Jóhannesson
54. mín. 1:1 ?
60. mín. 1:2 Davíð Egilsson
67. mín. 1:3 Víðir Þorvarðarson
78. mín. 2:3 ?
 
Umsögn Hjalta um leikinn:
Kolli; Adólf, Davíð, Kjartan, Andri(Hilmar); Trausti(Víðir), Stebbi Braga., Doddi, Ívar(Hjálmar), Einar KK(Gísli); Sæþór(Einar G). Nánari skýrsla frá Trausta seinna, varamennirnir mjög góðir að hans sögn, ég varð að standa læknavaktina hérna heima, í staðinn gat Davíð spilað. Frábært, peyjar, þið eruð ótrúlegir! Ekkert smástoltur af ykkur!

K. F. S. vann þar með riðilinn og hefur ekki tapað í 15 deildaleikjum í röð, enn eitt félagsmetið. Markatalan 52:9 í 14 leikjum, 9 unnist og 5 jafntefli!

Umsögn mótherjana um leikinn:
Heimasíða Álftanes
Til baka
Næst á dagskrá
Íslandsmót A riðill
KFS - Ægir
Sunnud. 20. maí kl. 13:00
Helgafellsvöllur