Doktor Hjalti hættur þjálfun KFS eftir 25 ár - Einar Kristinn tekur við

03.05.2017
Hjalti Kristjánsson hefur ákveðið að hætta sem þjálfari KFS eftir að hafa stýrt liðinu samfleytt í 25 ár! Einar Kristinn Kárason mun þjálfa lið KFS í næsta sumar og vera aðstoðarþjálfari hjá 2. flokki ÍBV.

KFS leikur í 4. deild í sumar eftir að hafa fallið úr 3. deild í fyrra. Einar hefur þjálfað yngri flokka hjá ÍBV undanfarin ár ásamt því að leika með KFS. Einar hefur núna lagt skóna á hilluna og einbeitir sér að þjálfun í sumar. „Samstarfssamningur var einnig gerður milli KFS og ÍBV um starfið í kringum KFS og 2.flokks ÍBV," segir á heimasíðu ÍBV. Hjalti Kristjánsson mun áfram sjá um alla umgjörð KFS. Hjalti er læknir úr Eyjum en hann hefur verið læknir U21 árs landsliðs karla í áraraðir. Í fyrra bætti Hjalti eigið met sem elsti leikmaður í sögu Íslandsmótsins en hann kom þá inn á sem varamaður hjá KFS, 57 ára gamall!
 

Næst á dagskrá

 

Auglýsingar

Tengill á ksi.is

 
Riðill og leikir KFS 2023
á síðu KSÍ