Leikur: | KFS - KB 5-0

12. júlí 2009

KFS - KB [5-0]

Helgafellsvöllur Vestmannaeyjum

KFS og KB mættust að öðru sinni í dag á Helgafellsvelli. KFS sigraði leikinn í gær örugglega (5-0) og búist var við að KB menn myndu koma sterkir til baka. Þó nokkra þreytu mátti sjá í leiknum en KFS menn héldu uppteknum hætti og skoruðu fimm sinnum í seinni hálfleik. KFS því orðið lang efst í B-riðli 3 deildar með markatöluna 32-5 í 9 leikjum, það gerir 3,5 mörk að meðaltali í leik.

Sjá KSÍ skýrslu af leiknum, smella hérna.
 
Mörk KFS:
1-0 Trausti Hjaltason ('63) (víti)
2-0 Sæþór Jóhannesson('67)
3-0 Anton Bjarnason ('72)
4-0 Kolbeinn A. Arnarson ('81) (víti)
5-0 Magnús Elíasson ('90)
 
Umsögn Hjalta um leikinn:
KFS er tölfræðilega með bestu vörn landsins í mfl. karla eftir þennan leik, 5 mörk í 9 leikjum.

Maður er alveg mát! Fjórði sigurinn í röð með og 20:1 í þeim, samtals 32:5 í 9 leikjum!
Fyrri hálfleikurinn jafn og lítið að gerast, þó áttum við dauðafæri, Stefán Björn skallaði framhjá og gott ef Ívar átti ekki dauðafæri líka.
Eins og í síðustu leikjum hrundi allt hjá andstæðingunum í seinni hálfleik, núna eftir 63 mín. Toni átti stoðsendingar og fékk 2 víti, auk þess að skora. Ég hélt, að fráhvarf Egils til ÍBV í hálfleik í gær myndi veikja liðið. Sindri var síðan frá í dag, en ónei, aftur komu 4 súperskiptingar, þar sem varamennirnir hleyptu miklu lífi í leikinn. Mest var þó fagnað, þegar Magninho skoraði með dæmigerðum Magninhotöktum í lokin. Kolli fékk loks uppfyllta ósk sína um að taka fríspark/víti, ætli hann verði ekki óþolandi eftir þetta!
Ekkert smástoltur af þessu liði, sama hverjir koma inn, allt gengur upp. Allir edrú í gærkveldi og ákveðnir í að klára þetta. Allir að vinna fyrir hvern annan og nánast allir í toppformi.
Kolli 10(Hannes vildi ekki fara inn á); Hilmar 10(Óðinn Steins., já formaðurinn 10), Davíð 10 gult, Adólf 10(Trausti Hj. 10), Andri 10; Stefán Björn 10(Einar Kristinn 10), Stebbi Br. 10, Þórður 10, Ívar 10, gult, Anton 10; Sæþór 10(Magnús E 10).
Næsta æfing 18.30 á miðvikudag, einhver meiðsla- og fjarverulisti, skora á Jónatan og Jóa Rúnar að gefa sig í þetta og alla aðra góða menn.
Takk peyjar, fyrir einhverja bestu fótboltahelgi á mínum langa ferli. Þetta rekur mann langi áfram!
 
Umsögn mótherjana um leikinn:
 
Til baka
Næst á dagskrá
Íslandsmót A riðill
KFS - Ægir
Sunnud. 20. maí kl. 13:00
Helgafellsvöllur