KFS mætti sterku liði Álftanes í toppslag B-riðils 3 deildar. Leikurinn var mjög fjörugur og átti KFS betri færi í fyrrihálfleik en inn vildi boltinn ekki fara. Stefán Braga nýtti sér varnarmistök Álftanes snemma í seinni hálfleik og þrátt fyrir nokkur góð færi náði KFS ekki að bæta við marki og Álftanes jafnaði úr víti þegar 2 mín voru eftir að leiknum. KFS er enn í efsta sæti og leikur næsta leik á miðvikudaginn á móti KFR á Hvolsvelli.
Sjá KSÍ skýrslu af leiknum,
smella hérna.
Mörk KFS:
1-0 Stefán Bragason ('52)
1-1 Sigurður Brynjólfsson ('88, víti)
Umsögn Hjalta um leikinn:
Góð úrslit í kvöld gegn hinu sterka liðinu í riðlinum, Álftanesi, sem óneitanlega er í betra standi en hin liðin. Við vorum talsvert betri í fyrri hálfleik og hefðum átt að nýta nokkur dauðafæri. Þegar þeir fengu rautt rétt fyrir hálfleik leit þetta vel út og Stebbi Braga. skoraði eftir nkr. mín. í seinni hálfleik. Við héldum áfram að vera betri, en það verður að viðurkennast, að skiptingarnar tókust ekki eins vel og venjulega, enda andstæðingurinn sterkari en venjulega. Smám saman náðu Álftnesingar tökum á þessu og komust oft upp vi. vænginn seinni partinn. Það endaði með vítaspyrnu eftir misreiknað úthlaup markmannsins okkar, sem annars hefur reynst frábærlega. Sigurður Brynjólfsson jafnaði úr vítinu. Þar við sat, enda var þetta 2 mín. fyrir leikslok.
Þetta var góð prófraun fyrir framhaldið, en sumir höndluðu það ekki alveg. Þeir læra væntanlega af þessu. Eins er mikil móðgun við félagana að yfirgefa varamannaskýlið, þegar menn eru teknir út af, menn geta beðið afsökunar á því í þetta sinnið, en það verður ekki liðið aftur. Þetta hefur verið margrætt áður. Voru margir að tala um þetta í liðinu eftir á og eins að þessar skiptingar hefðu verið mjög eðlilegar. Við þurfum að byggja á varamönnunum líka og 2 þeirra fengu ekki einu sinni að fara inn á og ættu að vera ólíkt reiðari en þeir, sem fengu þó að byrja leikinn. Þetta er liðsíþrótt og smámótlæti á að þjappa mönnum saman. Gef ekki einkun í kvöld, nokkrir myndu ekki þola það. Hún fer bara í kladdann. Davíð var sem fyrr besti maðurinn.
Kolli(takk fyrir Guðjón Orri að koma); Hilmar(Jónatan), Davíð, Adólf, Andri(Jóhann Rúnar); Trausti spilaði sinn 1. heila leik í sumar, Stebbi B., fyrirliði, Toni, Ívar, Einar Kristinn(Stefán Björn); Sæþór. Magninho fékk ekki að spreyta sig.
Takk fyrir flottan leik peyjar framan af, náðum jafntefli við besta liðið í riðlinum fyrir utan okkur, áttum meira skilið, en lærum af þessu. Stapan er góð, leikin er 3-föld umferð, alls 15 leikir og 2 efstu liðin fara í 8-liða úrslit. Við nálgumst þau æ meir.
Umsögn mótherjana um leikinn: