16. desember 2011
Styrktarmót fyrir SteingrÃm Jóh.
Föstudaginn 30. des. hyggur smíðaklúbburinn Þumalputtar ásamt ÍBV á að halda
styrktarmót í knattspyrnu fyrir markahrókinn Steingrím Jóhannesson. Öll innkoma af
mótinu rennur óskipt til Steingríms sem berst við krabbamein.
Keppt verður í Eimskipshöllinni (höllinni skipt í 4 velli), 5 manna lið, leiktími
1x10 mínútur, og hefst mótið klukkan 17:00. Fyrirkomulagið og mótslok fara eftir
þátttöku.
Hvetjum fyrirtæki, félög og vinahópa að taka þátt og styðja þétt við bakið á
markahróknum.
Skráningar í mótið sendist á netfangið
odi@eyjar.is<mailto:
odi@eyjar.is>
Kostnaður á lið að lágmarki krónur 10.000,- (AÐ SJÁLFSÖGÐU HEIMILT AÐ GREIÐA HÆRRA
ÞÁTTTÖKUGJALD !!!)
Þátttökugjald og frjáls framlög leggjast inná reikning 0582-15-82639 kt. 140673-4639
Vinsamlega setjið reikningsnúmerið ekki á Facebook !!!
Til baka