Hleð mynd
Æfingatímar
-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2011
Mánud. 19:50 Sporthúsið
 

Vestm.eyjar 2011
mánudagar 20:10 Týsheimili
miðvikudagar 20:30 Eimskipshöll
 
 

YouTube Horn KFS
 
 
 
 
Fréttir

07. október 2011

Lokahófið á morgun

Þá er þetta allt að bresta á. Á morgun er lokahóf KFS og eins og áður hefur komið fram verður það haldið á Kaffi Kró. Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst upp úr kl. 20:00. Menn beðnir að mæta ekki of seint.

En Einar Björn, fyrrum hægri eldingin okkar, eldar dýrindis málsverð fyrir okkur. Í forrétt verður humarsúpa með humri frá Sindra Viðars (takk Sindri). Í aðalrétt verða hestalundir með öllu tilheyrandi. Þar lofar Einar Björn ótrúlega rómaðri steik. Svo er það kaffi og konfekt (eða konnari) á eftir. Að sjálfsögðu verður ræða Stjórans á sínum stað. Njáll Ragnars frumflytur (í annað sinn) KFS lagið sem samið var hér á árum áður af honum og Andra Hæ. Atvinnutrúbadorinn Fannar verður að sjálfsögðu með okkur, aldrei að vita hvað honum dettur í hug að gera. Þá mun einn og aðeins bolur verða boðinn upp og honum fylgir óskalag á ballinu með Brimnes (gegn því að klæðast honum). Aldrei að vita nema myndasýning verði í gangi. Og að sjálfsögðu verða verðlaun veitt fyrir afrek sumarsins.
Enn hafa ekki allir svarað sem hafa spilað með okkur í sumar eða aðrir í kringum liðið. Endilega að mæta sem flestir en láta mig samt vita. Gaman að fá sem flesta.
Þá verða miðar á ballið á 33% afslætti þannig að það er til mikils að vinna.
Sjáumst hressir á morgun.
Til baka
Næst á dagskrá
Lengjubikar C-deild
Árborg-KFS
Laugard. 17. mars kl. 14
Selfossvöllur
Lengjubikar C-deild
 Lið Net Stig
 Árborg 0 0
 Huginn 0 0
 Hvíti riddarinn 0 0
 KFS 0 0
Þróttur Vogum 0 0