04. september 2010
KFS lokið keppni á þessu tímabili
KFS hefur lokið keppni á þessu tímabili. Liðið tapaði öðru sinni fyrir Árborg á Selfossi á þriðjudag og er því úr leik í úrslitakeppninni. Leikið var á gervigrasinu á Selfossi og tapaðist leikurinn 1-3, samanlagt 5-1 í leikjunum tveimur.
Árborg mætir Tindastóli í undanúrslitum og fer fyrri leikurinn fram á Selfossi í dag. KFS hefði því þurft að ferðast á Sauðárkrók á þriðjudaginn til að spila hefði liðið komist áfram.
Nú halda nokkrir leikmenn KFS í nám til Reykjavíkur og vonandi verður hægt að halda úti öflugu starfi í Reykjavík í vetur, eins verður vonandi kraftur í því í Eyjum.
Framundan er lokahóf félagsins sem haldið verður í október og verður örugglega mikið um dýrðir þar.
Leikmenn KFS þakka stuðninginn á heimaleikjum í sumar og aldrei að vita nema þeir mæti til leiks í nýjum búningum næsta sumar.
Til baka