23. júlí 2010
KFS - KFK laugardag kl. 14
Á laugardag kl. 14 tekur KFS á móti liði KFK frá Kópavogi. Leikurinn fer fram á Helgafellsvelli og mun Kjartan rakari Björnsson flauta til leiks kl. 14. Tveir nýir leikmenn munu leika með KFS í þessum leik.
Guðjón Ólafsson (Sigurvinssonar) hefur komið til KFS að láni frá ÍBV. Guðjón er búinn að ná sér af erfiðum meiðslum og er hann mikill liðsstyrkur fyrir KFS. Þá hefur Steinar E. Knútsson einnig komið til KFS frá ÍBV en hann er leikmaður 2. flokks félagsins. Hann er varnarmaður og styrkur fyrir KFS að fá hann í baráttuna sem er framundan.
KFS er í baráttunni um að komast í úrslitakeppnina og er sem stendur í 3. sæti riðilsins. Sigur í leiknum myndi koma KFS í 2. sæti, a.m.k. tímabundið, en Ægir sem er nú í 2. sæti á leik á þriðjudag. KFK er sæti neðar en KFS en kæmist upp fyrir með sigri. Því er mjög mikilvægt að ná sigri í þessum leik og hvetjum við stuðningsmenn til að mæta á völlinn og styðja strákana í KFS. Þetta er síðasti leikur fyrir Þjóðhátíð og það er alltaf gott að starta hátíðinni með sigri.
Til baka