25. ágúst 2010
KFS-Árborg á Hásteinsvelli á laugardag
Með útisigri gegn Ægi í síðasta leik riðlakeppninnar, tryggði KFS sér sæti í úrslitakeppni 3. deildar. Úrslitakeppnin hefst á laugardag og er spilað heima og heiman. KFS mætir liði Árborgar sem burstaði sinn riðil og tapaði aðeins einum leik. Fyrri leikur liðanna fer f ram á Hásteinsvelli og verður flautað til leiks kl. 15:30.
Verður þetta fyrsti leikur KFS á Hásteinsvelli en eftir miklar rigningar undanfarið má segja að Helgafellsvöllur sé óleikhæfur. Leikurinn fer fram kl. 15:30 en ekki kl. 14 eins og aðrir leikir þar sem ekki er laust í fyrstu ferð Herjólfs á laugardagsmorgun frá Landeyjarhöfn. Síðari leikur liðanna fer fram á þriðjudag á Selfossi og verður leikið á gervigrasi þar sem Árborg fær ekki að leika á nýjum grasvelli þeirra Selfyssinga. Verður líklega leikið í flóðljósum þar sem seinka þarf leiknum, en leikmenn KFS fara með Herjólfi kl. 17. Leikmenn komast þá ekki heim aftur fyrr en daginn eftir.
Þess má geta að dómarar í þessum leik eru þeir Pétur, Guðmundur og Hálfdán Guðmundssynir. Ætli þeir séu skyldir?
Til baka