14. ágúst 2010
KFS - Afríka sunnudag kl. 14
Á morgun, sunnudag, kl. 14 tekur KFS á móti liði Afríku í næst síðasta leik riðlakeppninnar. Eftir leiki gærdagsins er KFS í fjórða sæti en á leik inni á liðin fyrir ofan. Með sigri færi KFS í annað sæti, en það gefur sæti í úrslitakeppninni.
Þrjú lið keppast við að ná inn í úrslitakeppnina, þ.e. KFS, Ægir og KFK. Hin liðin tvö eru með 17 stig eftir 11 leiki en nái KFS sigri á morgun förum við í 19 stig. Síðasti leikur KFS er gegn Ægi í Þorlákshöfn og gæti það orðið algjör úrslitaleikur um 2. sætið. Þá gæti markatala einnig skipt máli þegar upp verður staðið. Afríka er í neðsta sæti með ekkert stig en fyrri leikur þessara liða endaði með sigri KFS 1-6. Dómari á morgun verður Kjartan rakari Björnsson.
Til baka