SpjalliðGetraunirEldra spjall

Spjallið

Svara

Nýir leikmenn KFS!

Eftir Stjórinn þann 12 Jul 2019 klukkan 16:19
Tveir nýir leikmenn í KFS: Snorri Eldjárn Hauksson fyrirliði Dalvíkur/Reynis, 28 ára varnarmaður, er kominn í KFS af atvinnuástæðum. Enginn smálax hér, leikið a.m.k. 3var gegn KFS í 3. deild, m.a. með Einherja á Vopnafirði. Gert 14 mörk í 195 deildar- og bikarleikjum. Við tökum fagnandi á móti Snorra, sem æfði með okkur á tímabili sl. vetur og sýndi okkur strax hve mikill karakter hann er.
Hinn nýi leikmaðurinn er 16 ára, frá ÍBV; Magnús Sigurnýjas Magnússon, efnilegur kappi, sem hefur verið að gera það gott með 2. flokki ÍBV að undanförnu og getur nú gert sig gildan í samstarfi ÍBV og KFS í 4. deild. Bjóðum hann hjartanlega velkominn.

Til baka...

Titill:

Nafn:

Skilaboð:

tveir =

Spam vörnin, vonandi ekki of erfið. (skrifa tölustaf)

Næst á dagskrá

 

Auglýsingar

Tengill á ksi.is

 
Riðill og leikir KFS 2023
á síðu KSÍ