Hleð mynd
Æfingatímar
-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2011
Mánud. 19:50 Sporthúsið
 

Vestm.eyjar 2011
mánudagar 20:10 Týsheimili
miðvikudagar 20:30 Eimskipshöll
 
 

YouTube Horn KFS
 
 
 
 
Pistlar

Þróttur V. - KFS [4-0]

 KFS hóf íslandsmótið síðastliðinn mánudag á móti Þrótti Vogum. Leikið var í Vogunum og gekk lítið upp hjá eyjamönnum í þessum leik. Heimamenn fögnuðu sigri og þurfa KFS menn að rífa upp um sig buxurnar ef þeir ætla sér í úrslitakeppnina í ár. Hægt er að sjá umsögn Hjalta um leikinn og tengill á heimasíðu Þróttara þar sem hægt er að lesa þeirra lýsingu á leiknum ásamt myndum úr leiknum. Myndin með þessari frétt er fengin af láni af vef Þróttar.
28. maí 2010

KFS - Hvíti Riddarans [2-5]

KFS mátti þola sitt fyrsta tap í sumar á Hásteinsvellinum á móti Hvíta Riddaranum í 8-liða úrslitum. KFS er því dottið úr leik.
01. september 2009

KFS - KFR [2-0]

KFS vann góðan sigur á KFR síðast liðinn föstudag, leikurinn var sá síðasti í riðlakeppninni. KFR í neðsta sæti og KFS í því efsta. Leikurinn skipti engu máli fyrir hvorugt lið uppá sætin í riðlinum en KFS undirbýr sig fyrir úrslitakeppnina og því ekkert slakað á. 0-0 var í hálfleik en KFS skoraði 2 mörk fljótlega í seinni hálfleik og tryggði sér góðan sigur.
23. ágúst 2009

Álftanes - KFS [2-3]

KFS vann loksins sigur á sterku liði Álftanes í dag, báðar fyrri viðureignum liðana enduðu með 1-1 jafntefli og KFS staðráðnir að sigra Álftanesinga einu sinni í sumar. KFS byrjaði betur og var komið yfir eftir 8 mín leik og staðan í hálfleik 1-0 þrátt fyrir að bæði lið hefðu geta skorað mörk. Álftanes jafnaði leikinn en KFS skoraði 2 mörk með stuttu millibilli og gerði næstum út um leikinn. Andstæðingarnir voru hinsvegar ekki sammála og skoruðu eitt mark og settu pressu undir lokinn en KFS hélt út og tryggði sér sigur.
15. ágúst 2009

Þróttur V. - KFS [1-1]

KFS hélt í Vogana á laugardaginn og spilaði seinasta leik sinn við Þrótt í riðlinum. Leikurinn var jafn og spennandi og áttu bæði lið nokkuð góð færi en það var ekki fyrr en undir lok fyrri hálfleiks að KFS náði að komast yfir. KFS hélt forustunni til 85 mín og jafntefli staðreynd. KFS er enn í efsta sæti riðilsins og nægir jafntefli gegn Álftanes næsta laugardag til að tryggja sér fyrsta sæti riðilsins.
08. ágúst 2009

KFS - Augnablik [13-0]

KFS vann stórsigur á liði Augnabliks í kvöld á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum. Það má með sanni segja að leikmenn KFS hafi verið í þjóðhátíðarstuði og þurftu leikmenn Augnabliks að sækja boltann alls 13 sinnum í mark sitt áður en dómari leiksins flautaði af. Staðan var 5-0 í hálfleik og flugeldasýningin kom í þeim seinni. KFS braut fjölda félagsmet og örugglega fleiri met, hægt er að lesa þau í umfjöllun Hjalta um leikinn. KFS þakkar frábæran stuðning á leiknum og óskar öllum eyjamönnum og gestum ánægjulegra þjóðhátíðar.
29. júlí 2009

KFR - KFS [0-2]

KFS hélt á Hvolsvöll á miðvikudaginn og keppti við KFR. KFS byrjaði að krafti og ætlaði að sýna KFR mönnum hvaða lið væri ósigrað í efsta sæti riðilsins. Eftir fjölda færa KFS manna í fyrri hálfleik var staðan samt ennþá 0-0 í hálfleik. En í seinni hálfleik náðu KFS menn að skora 2 mörk, bæði eftir hornspyrnu og frábæra skalla hjá Sindra og hjá risa leikmanninum Himma. Næsti leikur er á heimavelli gegn Augnabliki núna á miðvikudaginn fyrir þjóðhátíð.
22. júlí 2009

KFS - Álftanes [1-1]

KFS mætti sterku liði Álftanes í toppslag B-riðils 3 deildar. Leikurinn var mjög fjörugur og átti KFS betri færi í fyrrihálfleik en inn vildi boltinn ekki fara. Stefán Braga nýtti sér varnarmistök Álftanes snemma í seinni hálfleik og þrátt fyrir nokkur góð færi náði KFS ekki að bæta við marki og Álftanes jafnaði úr víti þegar 2 mín voru eftir að leiknum. KFS er enn í efsta sæti og leikur næsta leik á miðvikudaginn á móti KFR á Hvolsvelli.
17. júlí 2009

KFS - KB [5-0]

KFS og KB mættust að öðru sinni í dag á Helgafellsvelli. KFS sigraði leikinn í gær örugglega (5-0) og búist var við að KB menn myndu koma sterkir til baka. Þó nokkra þreytu mátti sjá í leiknum en KFS menn héldu uppteknum hætti og skoruðu fimm sinnum í seinni hálfleik. KFS því orðið lang efst í B-riðli 3 deildar með markatöluna 32-5 í 9 leikjum, það gerir 3,5 mörk að meðaltali í leik.
12. júlí 2009

KFS - KB [5-0]

KFS mætti í dag liði KB á Helgafellsvelli í þó nokkru hvassviðri sem beindist á annað markið. KB byrjaði á sækja undan vindi og var betri aðillinn í fyrrihálfleik þótt þeir náðu ekki að skapa sér nein virkilega hættuleg færi. KFS komu sterkir inn í seinni hálfleik og skoruðu 2 mörk á fyrstu 7 mínútunum og bættu 3 til viðbótar áður en dómari leiksins flautaði af. Liðin mættast svo að öðru sinni á morgun, kl 14:00 á Helgafellsvelli og hvetjum við alla eyjamenn að kíkja á völlinn.
11. júlí 2009
Eldri pistlar
Næst á dagskrá
 
3. deild B-riðill
 Lið Net Stig
 KFR 14 28
 KV 11 28
 Léttir 19 27
 Ýmir 19 24
 Ægir 13 23
 KFS 9 21
 KH -32 10
 Hvíti riddarinn
-53 0