Hleð mynd
Æfingatímar
-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2011
Mánud. 19:50 Sporthúsið
 

Vestm.eyjar 2011
mánudagar 20:10 Týsheimili
miðvikudagar 20:30 Eimskipshöll
 
 

YouTube Horn KFS
 
 
 
 
Leikur: Þróttur V. - KFS 4-0

28. maí 2010

Þróttur V. - KFS [4-0]

Vogavöllur

 KFS hóf íslandsmótið síðastliðinn mánudag á móti Þrótti Vogum. Leikið var í Vogunum og gekk lítið upp hjá eyjamönnum í þessum leik. Heimamenn fögnuðu sigri og þurfa KFS menn að rífa upp um sig buxurnar ef þeir ætla sér í úrslitakeppnina í ár. Hægt er að sjá umsögn Hjalta um leikinn og tengill á heimasíðu Þróttara þar sem hægt er að lesa þeirra lýsingu á leiknum ásamt myndum úr leiknum. Myndin með þessari frétt er fengin af láni af vef Þróttar.

Sjá KSÍ skýrslu af leiknum, smella hérna.
 
Mörk:
1-0 Hallur Kristján Ásgeirsson ('10, víti)
2-0 Hallur Kristján Ásgeirsson ('57)
3-0 Bjarni Steinar Sveinbjörnsson ('64)
4-0 Hjörtur Magni Sigurðsson ('92)
 
Umsögn Hjalta um leikinn:
Nokkurra daga martröð lauk vonandi í dag.Hún byrjaði með rauðu spjaldi gegn Víkingi Ó., hélt áfram á næstu 3 æfingum eftir það, mjög fáir lykilleikmenn sáust þar og í gær týndist svo af 16 manna hópnum með hverjum klukkutímanum fyrir leikinn í dag og voru þó afföllin næg fyrir. Takk sé trúföstum KFS-urum náðum við að senda 11 manna lið, menn, sem ekki hafa verið í myndinni í vor mættu svo á bekkinn. Þegar síðan dómarinn tók upp sömu háttu og í fyrri leiknum í Vogum í fyrra var ljóst hvert stefndi. Fyrst víti eftir 10 mín. fyrir ekki brot utan teigs, síðan látlaus brot á okkar mönnum án dóma, gott ef þeir fengu ekki 18 aukaspyrnur gegn 2 í fyrri hálfleik. Hámarki náði þetta í s. h. þegar fyrirliðinn þeirra(a.m.k í fyrra, sá ekki ver var fyrirliði í dag) hálfrotaði Ingó, ekki einu sinni gult þar. Þetta fór auðvitað mikið í taugarnar á mönnum allt saman, eftir það, sem á undan gekk í leiknum á undan og a.m.k. 5 dauðafæri okkar fóru forgörðum. Annað markið var svo gjöf dómarans eftir mjög leikrænt fall eins Þróttarans og mig skal ekki undra, að menn gáfust upp. Óska Þrótti V. til hamingju með fyrsta sigur sinn á K.F. S., neita því ekki að verðskuldaður var hann. Þeir, sem komu ekki af líklegum kandidötum voru: Kolli; (Trausti/Ingó gátu bara spilað sinn hvorn hálfleikinn,) Palli, Smári, Adolf; Stefán Björn, Davíð, Bjarni Rúnar, Jónatan, Anton Rafn; Sæþór. Varamenn: Hjölli D, Christopher, Siggi SK og Jóhann Sveinn. Þeirra er ekki síður tapið en hinna 11, sem gáfu sig í byrjunarliðið. Það er ekki hægt að búast við árangri með nýtt lið í hvert sinn. Menn geta velt fyrir sér, hvort þetta eru eðlileg afföll í 3. deild, hjá toppliði árið áður.
Við ræddum ýmislegt í dag, sem þarf að laga, nema menn sætti sig við að tapa áfram: 1) Mæta á æfingar, tilkynna um þær hér og lesa spjallið. Það á við um Reykjavík líka. Næst hér er Helgafellsvöllur mvd. kl. 19.30. Hvenær í Reykjavík?
2) Láta vita hér um forföll tímanlega, á æfingar og í leiki, eða hringja í mig; 481-2632.
3) Mæta tímanlega, ef æfingin er 19.30, vera kominn fyrir þann tíma, svo allir hinir þurfi ekki að bíða.
4) Miða fyllerí og frí við leikjaprógrammið, sjómannadagshelgin er t.d. fín fyrir þá þyrstu og ferðaglöðu(ekki leikur þá). Rætt um grill eftir næsta leik, þeir, sem voru að skemmta sér í gær gætu skipulagt það.
5) Mæta með því hugarfari á æfingar að bæta sig.
6) Borga félagsgjöldin! Þá verður kannske hægt að ferðast skemmtilega eön tíma í sumar.
7) Miða vinnu eins og hægt er, við leiki. Ófáar vaktirnar, sem ég hef skipt um vegna þeirra.
8) Skil aldrei þetta með afmælin og veislurnar. Það skilja allir í minni fjölskyldu, ef ég mæti ekki vegna fótbolta, eða er seinn eða stutt. Það er borin virðing fyrir þeim lífsstíl. Á orðið 30 ára hjónaband, konan hvetur mig frekar áfram en hitt. Þetta er nefnilega flottur lífsstíll, hef ekki smakkað áfengi langa lengi og ég held að konur beri ekki mikla virðingu fyrir mönnum til lengdar, sem gefa eftir öll sín prinsip. Fótbolti er besti lífsstíll, sem til er, bjargaði mínu lífi í mínu mesta áfalli á ævinni. Að vera í góðu formi gerir mann líka hamingjusaman og ánægðan. 
Að þessu sögðu: Ég hefði getað boðið upp á öflugra undirbúningstímabil með fleiri æfingaleikjum, en fyrst fleiri gáfu sig ekki í sólríkasta dag ársins fram að þessu, hefði orðið erfitt að manna það, og það minnkað lystina að mæta nú. Það hefði hins vegar aukið getuna, hún var ekki merkileg í dag. Við vorum líka að spara. Getum enn bætt okkur, set upp öflugar æfingar á næstunni, skemmtun áfram í fyrirrúmi.
Þakka þeim, sem gáfu sig í leikinn í dag, veit, að þeir vildu vel. Skora á alla í félaginu að hysja upp um sig brækurnar, annars verða töpin fleiri, lítið gaman þá. Þetta var engan veginn í lagi í dag. Ég hef aldrei gefist upp, vona, að þið gerið það ekki. Ekki bjóða mér og stuðningsmönnum okkar upp á fleiri svona leiki. Bið þá afsökunar á þessum en ég gerði hvað ég gat, endalaus símtöl a.m.k.

Umsögn mótherjana um leikinn:
Heimasíða Þróttar Vogum.
 
Til baka
Næst á dagskrá
 
3. deild B-riðill
 Lið Net Stig
 KFR 14 28
 KV 11 28
 Léttir 19 27
 Ýmir 19 24
 Ægir 13 23
 KFS 9 21
 KH -32 10
 Hvíti riddarinn
-53 0