Hleð mynd
Æfingatímar
-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2011
Mánud. 19:50 Sporthúsið
 

Vestm.eyjar 2011
mánudagar 20:10 Týsheimili
miðvikudagar 20:30 Eimskipshöll
 
 

YouTube Horn KFS
 
 
 
 
Leikur: | KFS - Hvíti Riddarans 2-5

01. september 2009

KFS - Hvíti Riddarans [2-5]

Hásteinsvöllur Vestmannaeyjar

KFS mátti þola sitt fyrsta tap í sumar á Hásteinsvellinum á móti Hvíta Riddaranum í 8-liða úrslitum. KFS er því dottið úr leik.

Sjá KSÍ skýrslu af leiknum, smella hérna.
 
Mörk KFS:
78. mín. 1:4 Sæþór Jóhannesson
81. mín. 2:4 Einar Kristinn Kárason
 
Umsögn Hjalta um leikinn:
Töpuðum 2:5(0:2) heima gegn Hvíta riddaranum í fyrstu og einu martröðinni í sumar. Líklega var hér um vanmat að ræða, eins og menn héldu, að ekkert þyrfti að hafa fyrir þessu, enda andstæðingarnir ekki beysnir í fyrri leiknum. Þeir yfirspiluðu okkur í dag upp í 0:4, þá hleyptu varamennirnir okkar lífi í þetta, Víðir fékk víti, sem Sæþór skoraði úr, á 78. mín. Einar Kristinn minnkaði muninn í 2:4 á 81. mín. og við þurftum bara eitt mark enn. Kjartan fékk færið til þess, en vantaði örlítið á áð ná boltanum. Þeir skoruðu svo á næstsíðustu spyrnu leiksins og unnu sanngjarnt 2:5. Til hamingju með það, Hvíti riddarinn.
Sindri var manna skárstur í fyrri hálfleik, Víðir, Kjartan og Andri hleyptu blóði í þetta í seinni hálfleik, flestaðrir léku langt undir getu. Vil þó nota tækifærið og þakka mönnum fyrir frábært sumar, mikil gleði fylgt því, líklega vorum við talsvert þreyttari en yngri mennirnir í H. R. eftir fyrri leikinn, það er stór hluti af skýringunni, held ég. Ég hef séð mönnum fara mikið fam í sumar, flestum hverjum, og vona, að menn mæti tilbúnir næsta vetur, að verða enn betri, líkt og við gerðum 2001, eftir að hafa fallið út 2000.
Kolli; Hilmar, Dabbi, Sindri, Adólf(Andri); Trausti(Víðir), Stebbi, fyririliði, gult(Kjartan), Doddi, Ívar, Einar KK; Sæþór. Þakka Hjalla og Hannesi kærlega fyrir að koma.
Dómararnir voru bara nokkuð góður, spurning þó um víti, þegar Ívar datt í teignum í stöðunni 2:4, held ég. Á eftir að sjá það á myndbandinu.
Hengjum ekki haus, getum verið stoltir af sumrinu, enginn bjóst við þessu fyrirfram, en auðvitað sárgrætilegt að falla út á heimavelli eftir 1:3 útisigur. Gjaldkerinn ætti að brosa eftir nokkra daga, það var það eina ánægjulega við þetta. Doddi kemst í ,,sitt" brúðkaup og ég í mína ferð til Norður-Írlands með U-21-liðinu, ef þeir hafa ekki ráðið einhvern í staðinn fyrir mig!
Til baka
Næst á dagskrá
 
3. deild B-riðill
 Lið Net Stig
 KFR 14 28
 KV 11 28
 Léttir 19 27
 Ýmir 19 24
 Ægir 13 23
 KFS 9 21
 KH -32 10
 Hvíti riddarinn
-53 0