Fréttir

Árborg-KFS á Selfossvelli kl. 20 í kvöld

Síðari leikur þessara liða fer fram á Selfossvelli í kvöld kl. 20. Verður spilað á gervigrasinu. Árborg vann fyrri leikinn 0-2 á Hásteinsvelli og því bíður KFS erfitt verkefni í kvöld. Hvetjum alla Eyjamenn sem eru á ferðinni að kíkja við á Selfossvelli og hvetja strákana í KFS áfram. Leikurinn gæti farið í framlengingu og vítaspyrnukeppni.
31. ágúst 2010

KFS-Árborg á Hásteinsvelli á laugardag

Með útisigri gegn Ægi í síðasta leik riðlakeppninnar, tryggði KFS sér sæti í úrslitakeppni 3. deildar. Úrslitakeppnin hefst á laugardag og er spilað heima og heiman. KFS mætir liði Árborgar sem burstaði sinn riðil og tapaði aðeins einum leik. Fyrri leikur liðanna fer f ram á Hásteinsvelli og verður flautað til leiks kl. 15:30.
25. ágúst 2010

KFS - Afríka sunnudag kl. 14

Á morgun, sunnudag, kl. 14 tekur KFS á móti liði Afríku í næst síðasta leik riðlakeppninnar. Eftir leiki gærdagsins er KFS í fjórða sæti en á leik inni á liðin fyrir ofan. Með sigri færi KFS í annað sæti, en það gefur sæti í úrslitakeppninni.
14. ágúst 2010
Eldri fréttir
Næstu leikir
Ísl.mót 3.deild 8-liða úrslit
Árborg-KFS
Þriðjud. 31. ágúst kl. 20:00
Selfossvöllur
Íslandsm. 3.deild B-riðill
   Lið  Net  Stig
 1  Berserkir 26 31
 2  KFS 13 22
 3  KFK 15 20
 4 Ægir 3 17
 5  Vængir Júpiters -5 17
 6  Þróttur Vogum -4 14
 7  Afríka -48 0